Ég heiti Arankas knock me out "Woodie" (svartur) og er fyrsti PULI á íslandi,og ég heiti Gubanc (hvit) og er annar puli á Íslandi. |
Um okkur:
|
||||||||||||||||||||||||
Við erum af tegundinni Puli sem er ungverskur hjarðhundur. Hann er af Asiskum uppruna. Puli er meðalstór hundur með glaðlega skapgerð og með einstaka námshæfileika. Puli er með einstakan feld sem minnir á kind. Feldurinn er þykkur og verður mjög síður og snúrur myndast þegar hundurinn er fullvaxinn. Hann er frábær fjölskylduhundur og barngóður. Feldurinn er auðveldur og krefst ekki mikils, það má alls ekki bursta hann eða kemba. Puli fer ekki úr hárum því gömlu hárin vefjast upp í þessar sérkennilegu snúrur sem eru hans auðkenni.
|
||||||||||||||||||||||||
Bæn hundsins |
||||||||||||||||||||||||
Ég lifi varla lengur en 15 ár. Mér líður illa án þín. Hugleiddu það áður en þú tekur mig að þér. Gefðu mér tíma og svigrúm til að skilja til hvers þú ætlast af mér. Hrós þitt og umbun er sem sólargeisli, refsing er þungur dómur. Reiðstu ekki sakleysi mínu, ég vil þér vel. Þú átt þína atvinnu, þínar ánægjustndir og þína vini. Ég á aðeins þig. Talaðu við mig. Enda þótt ég skilji ekki mál þitt, þá skil ég tón raddar þinnar. Augu mín og látbragð eru mín orð. Áður en þú slærð mig, bið ég þig að muna, að með beittum tönnum get ég kramið hönd þína, en ég mun aldrei beita þig ofbeldi. Ef þér finnst ég leiðinlegur, vegna annríkis þíns, mundu þá að stundum líður mér illa og verð pirraður t.d. í sólarhita. Annastu mig þegar ég verð gamall. Án þín er ég hjálparvana. Deildu með mér gleði þinni og sorgum. Veittu mér hlutdeild í lífi þínu, því ég elska þig.
|
||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||
Eignarhaldsreglur hunds: |
||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||
.