HOTSPRING MANOR

WWW.HOTSPRINGPULI.COM

Nánari uppl. asakk@visir.is

 

Ungverjar segja að puli sé ekki hundur, Puli er Puli

 


Puli, eða Pulik í fleirtölu er ungverskur hjarðhundur. Hann er af Asiskum uppruna. Puli er ein elsta hundategund í heimi. Við fornleifauppgröft í hinni fornu Mesampotamiu (nú Irak) hafa fundist Puli-líkar styttur og myndristur. Flestar fundnar í gröfum. Í þjóðminjasafninu í Bagdad er hægt að sjá merki þess að Puli, hafi frá því um 4000 f.kr verið í miklum metum sem fjár og nautgripa hjarðhundur. Hann fylgdi manninum á ferð sinni í leit að veiðidýrum og í stríðum. Hann kom með þjóðarflutningunum miklu til Ungverjalands. Þeirra tíma hjarðmenn fengu strax mikið dálæti á honum og kunnu vel að meta hraustleika, frábæran hreyfanleika og einstakan karakter. Í augum hjarðmannana var Puli mikið meira en “bara” hundur og eru til skjalfestar heimildir um að verð á einum góðum Puli var sama og árslaun hjarðmannsins.

Það er hægt að þakka það hjarðmönnunum að þetta falslausa innræti og einstaklega sterklega líkamsbygging hefur haldið velli, nánast óbreytt fram til dagsins í dag. Eftir heimsstyrjaldirnar fór almenningur einnig að uppgötva Puli og hann vann mjög hratt hug og hjörtu fólks, ekki síst barna. Í dag er Puli fyrst og fremst ræktaður sem fjölskylduhundur. Hann er eftir sem áður ástsæll í Ungverjalandi og víðar sem hjarðhundur. Hann þarf ekki mikið nám til að verða gildur sem slíkur.Hann er einnig mikill varðundur. Puli er einnig notaður sem lögregluhundur m.a. Í Bandaríkjunum. Hann hefur einnig sannað sig sem sporhundur.

 

 

 

Í fjölskyldunni er Puli glaðlegur, barngóður og traustur félagi og hefur sterka hvöt til að halda sinni “tvífættu” hjörð saman. Hann er tortryggin gagnvart ókunnugum og tekur hlutverk sitt alvarlega.. að gæta hjarðarinnar sinnar, sem er fjölskyldan og bústaður hennar og auðvitað kvikfé sem henni tilheyrir. Hann er mjög þolgóður hlaupari og hefur gaman af því að leika sér og fara í göngutúra. Hann hentar jafnvel í borg sem sveit ef hann fær nægilega hreyfingu og er snöggur að aðlagast aðstæðum. Puli er léttbyggður og snaggaralegur í hreyfingum. Hann er með glaðlega skapgerð og hefur einstaka námshæfileika. Hann getur verið hávær þegar mikið liggur við og einnig ef honum finnst sinni hjörð vera ógnað. Puli þarf jákvæðan aga og hann er mjög heillandi og ótrúlega greindur og auðvelt að kenna honum. Það sem gerir hann svona einstakan í útliti er feldurinn sem verður þykkur og síður með röstum eða böndum sem geta verið mismunandi að gerð. Feldurinn er frekar auðveldur og krefst ekki mikils, það má alls ekki bursta hann eða kemba nema sem hvolp, eftir 6 mán, (margir ræktendur mæla með því að sleppa alveg að kemba hvolpana) er alveg hætt að kemba eða bursta feldinn. Puli fer ekki úr hárum því dauðu hárin vefjast upp á nýju hárin og mynda hægt og bítandi þessa rasta eða bönd.

 

Um Puli almennt

 

Hérna eru svör við þeim spurningum sem oftast koma upp í umræðunni um Puli

 

Hvernig er feldhirðan á Puli ?

 

Í ljósi þess að feldurinn er alsettur þéttum röstum eða böndum frá náttúrunnar hendi ,er nauðsinlegt að gleyma öllu því sem maður hefur heyrt eða lært um feldhirðu !!

Í upphafi eru einungis hendurnar notaðar en síðar þegar hundurinn er eldri þarf eigandinn einnig að nota skæri ! Þar til hvolpurinn er ca. 10 mánaða felst feldhirðan að mestu í að nudda húðina, eiginlega vera duglegur við að klappa og klóra hvolpinum.

 

Er Puli barngóður?

 

Puli er mjög lífsglaður hundur en líka hjarðhundur sem þýður að hann hefur sterka hvöt til að gæta hjarðarinnar sinnar. Alment er reynslan sú með börn og Puli að hundurinn finnur fljótt að barnið þarf sérstaka aðgát, og þar spilar stórt hlutverk eðli hjarðhundins. Í flestum tilvikum verður barnið og Puli góðir leikfélagar og vinir. Puli er sem sé góður með börnum.

Þess ber þó að geta að hvolpur sem kemur á heimili, óháð teguðum, þarf kærleiksríkt uppeldi með jákvæðan aga, virðingu og sanngirni. Börn þurfa líka að læra að hvolpur er ekki tuskudýr sem hægt er að hnoðast með endalaust, því lengi býr að fyrstu gerð.

 

Hvað verður Puli gamall?

 

Puli er ekki stór hundur og eins og litlir til meðalstórir hundar getur hann orðið 12-16 ára.